
Í dag klukkan 17:00 verður haldin formlegur stofnfundur félagsins Ung gegn ESB aðild á Hótel Borg og verður þar lögð fram ályktun til samþykktar en ekki nánar sagt hvað sú ályktun fjallar um.
Þeir sem standa á bak við stofnun þessa félags eru, Anton Sveinn McKee, Ungliðahreyfing Miðflokksins, Halldór Ólafsson, Roða – Ungum Sósíalistum, Illugi Gunnarsson, Ung Vinstri Græn, Hrafn Splidt Þorvaldsson, Sambandi ungra Framsóknarmanna og Júlíus Viggó Ólafsson, Sambandi ungra Sjálfstæðismanna.
Nánar má lesa um þetta í frétt á Rǘv.is
Félagið heldur því fram í tilkynningu sinni að það beiti sér fyrir því að tillaga um aðildarumsókn að ESB, sem lögð verði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, verði felld en staðreyndin er sú, að 29. ágúst verður EKKI kosið um aðildarumsókn að ESB eins og félagið heldur fram heldur sú staðreynd að kosið verðu um að ganga til viðræðna við ESB og samið efnislega um hvað slíkir samningar hafa að segja fyrir land og þjóð.
Það er fátt meira lítilsvirðandi fyrir litla þjóð sem vill vera í alþjóðlegu samstarfi, hafa þar áhrif og taka þátt í þeim ákvörðunum sem þar eru teknar, en ungt fólk sem telur að íslandi sé betur borgið eitt og sér út í ballarhafi, stuðningslaust, áhrifalaust þar sem spilling og torfkofahugsunarháttur liðina alda er toppurinn á tilverunni.
Gleðilegan þjóðhátíðardag.
Skoðað: 13
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.



