Það á að drepa með öllum ráðum, sköttum skerðingum lífeyrisþega á íslandi. Fólkið sem fær skammtaðar svo lágar tekjur að þau eru í flestum tilfellum udnir sárafátæktarmörkum sem gerir það að verkum að fólk á ekki fyrir lyfjum eða nauðsynjum út mánuðinn og flestir orðnir auralausir um eða í kringum tíunda hvers mánaðar.

Desemberuppbótin er því kærkomin en mismunandi hvað hún er há hjá hverjum og einum og hér er dæmi um einstakling í meðfylgjandi skjáskotum sem fær heilar 33.437,- kórnu en skattmann kemur stormandi með ránfuglsklærnar útglenntar og hirðir af því 12.353,- krónur sem renna aftur í ríkissjóð.

Öldruðum og öryrkjum finnst þetta að sjálfsögðu blóðugt og ósanngjarnt enda horfa þeir upp á launafólk fá tæplega 100. þúsund krónur í desemberuppbót en ráðherrar og þingmenn, sem hafa ekkert, nákvæmlega minna en ekki neitt með svona uppbót á ofurlaun, skattafríðindi og aðrar sponslur, oftar en ekki skattfrjálsar, að gera enda sú upphæði hátt í 200 þúsund krónur.
Auðvita ætti þessu að vera öfugt farið krónulega séð því fólk sem daglega lepur dauðan úr skel hefur meiri þörf fyrir að geta gert sér glaðan dag einu sinni á ári og á alveg fullan rétt á því að fá þessa desemberuppbót skattfría og fjórfallt hærri en hún er í dag.
Skoðið hvernig ykkar staða er á Mínar síður á TR.is og endilega kommentið hér að neðan hvað er rifið af ykkur.
Það er hreinasta skömm að því hvernig farið er með fólk á íslandi.
Skoðað: 6035
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



