
Björn Birgisson ættu flestir, ef ekki nánast allir sem eru á samfélagsmiðlum að kannast við.
Hann er ekkert feiminn við að tjá skoðanir sínar og stundum hefur blásið ansi hressilega í kringum hann og það sem hann hefur látið frá sér á samfélagsmiðlum.
Fyrir nokkrum dögum setti hann inn færslu sem fékk, sem von var, talsverð viðbrögð en samt ekki nógu mikil enda efnið kaldhæðin ádeila á hina ,,hreinræktuðu” íslendinga.
Hér er innleggið í heild sinni.
Kæru hreinræktuðu Íslendingar!Læsir á íslenska tungu en minna læsir á erlend hrognamál, sem alltaf valda misskilningi í samskiptum þjóða og því er best að sleppa þeim samskiptum alveg og einbeita okkur að því sem alíslenskt er.**********Valdaafsal þjóðarinnar hófst skömmu eftir landnámið þegar svikamerðir sömdu við meinta konunga í Noregi, um að þeir fengju landið, gegn því að launa landsölumönnum með sæmilega bruggðuðu öli og skjóli til að drekka sem mest af því.Eftir það vorum við Íslendingar ýmist undir stjórn norskra eða danskra misindismanna sem báru ekkert skynbragð á yfirburði hins íslenska kynstofns.********Á árunum eftir 1900 var gerð alvarleg atlaga að sjálfbærri einangrun þjóðarinnar, atlaga sem sundraði þjóðinni í einangrun sinni.Einhverjum hafði dottið í hug að þjóðin þyrfti að fá símasamband, sem þá var mjög að ryðja sér til rúms í löndum blandaðra kynstofna.Rætt var um sæstreng á milli Íslands og Skotlands.Hreinræktaðir Íslendingar, einkum svokallaðir sveitahöfðingjar, beittu sér mjög gegn þessum ósóma og töldu betra að efla loftskeytasambandið en að almenningur gæti skipst á slúðri um menn og málefni símleiðis.**********Vont fólk í útlöndum efndi til heimsstyrjaldar á árunum 1914 til 1918 og svo aftur á árunum 1939 til 1945.Breskir hermenn gengu hér á land 1940. Mörgum hreinræktuðum Íslenskum konum leist betur á heimsborgaralega hreina og fína dátana en illa lyktandi kynhreina sveitavarginn, sem alltaf var á sveimi í konuleit með tóbaksklútana í vasanum.**********Eftir allar þessar ófriðaröldur í heiminum var mikið rætt um næstu framtíð.Útlendingum kom saman um að stofna Sameinuðu þjóðirnar með sem flestum þjóðum heimsins og að höfuðstöðvarnar væru í New York.Að gerast aðili að því alþjóðlega valdi var vitaskuld hættulegt valdaafsal af hálfu hreinræktaðra Íslendinga og margir voru því andsnúnir.Ekki tók betra við þegar nokkrum þjóðum austan og vestan við Atlandshafið datt í hug að stofna varnarbandalag sem kallað var NATO.Íslenskir landsölumenn sem áttu ekkert þjóðernisstolt, gengu í lið með hættulegum útlendingum og sömdu meira að segja um dvöl bandarískra hermanna á Miðnesheiði, fyrst með banni við þeldökkum hermönnum, en svo flæddu þeir inn í landið og meira að segja inn í nokkrar hreinræktaðar Íslenskar konur, sem þar með settu stoltan kynstofninn í hættu eins og gefur að skilja.En þetta var ekki allt.Landsölumenn voru alltaf að framselja valdið til útlendinga og þar með sjálfstæði þjóðarinnar.Samningur við EFTA löndin um framsal valds og skert sjálfstæði þjóðarinnar!Samningur við EES ríkin um framsal valds og skert sjálfstæði þjóðarinnar!Kynhreinir og hjartahreinir Íslenskir bjálfar voru alfarið á móti öllum þessum samningum og vildu heldur halda í torfkofamenninguna en tileinka sér framfarir umheimsins.**********Nú er rætt um að útvíkka samstarfið við Evrópu ríkin 27 sem mynda ESB, Efnahagsbandalag Evrópu.Fólkið sem var mótsnúið öllu ofangreindu hér og afkomendur þess fólks er mótsnúið nánari samvinnu við ESB.Molbúahátturinn og útlendingafóbían eru lögst í gen þessa fólks.Liðinu sem verður að athlægi næstum daglega á Alþingi.Það er svo hættulegt að eiga samskipti við alla þessa útlendinga!Þeir gætu nefnilega lagað stjórnarfarið hérlendis og látið hina kynhreinu og hreinræktuðu Íslendinga líta illa út í augum umheimsins.Molbúar Íslands gætu fallið í áliti!Held nú satt að segja að þeir komist ekki neðar!
Skoðað: 58
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



