Hanna Birna í varaformannsslaginn hjá Sjallaflokknum.

Skoðað: 3613

Siðblindur og óheiðarlegur þingmaður býður sig fram sem varaformann Sjálfstæðisflokksins.
Siðblindur og óheiðarlegur þingmaður býður sig fram sem varaformann Sjálfstæðisflokksins.

Hanna Birna Kristjánsdóttir lýsti því yfir í kvöldfréttum Stöðvar 2 nú fyrir stundu, að hún ætlar að sækjast eftir varaformannssætinu í Sjálfstæðisflokknum á komandi aðalfundi flokksins sem fram fer nú í haust.

Allir þekkja lekamálið og hvernig það fór fyrir Hönnu Birnu eftir að hún hafði logið blákalt að þingi og þjóð í nærri því heilt ár um lekann úr ráðaneyti hennar sem endaði með afsögn hennar sem ráðherra.

Það verður því áhugavert að sjá hvort kjósendur flokksins eru jafn siðferðislega blindir og óheiðarlegir og Hanna Birna eða hvort þeir sjái að sér og flokkurinn fari þá leið sem hann hefði átt að fara fyrir löngu, hrapa í fylgi vegna spillingar og óheiðarleika eða hvort kjósendur hans haldi áfram að loka augum og eyrum fyrir spilingunni og halda tryggð við hann.

Skoðað: 3613

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir