
UPPFÆRT!
Landeigandi hafði samband við fjölmiðla í gær og sagði málið byggt á misskilningi. Ruslið sé þarna með hans vitund og verði farið eftir helgi.
Eftir að eigandi jarðarinnar hafði samband við Pálma og útskýrði málavexti þá fjarlægði Pálmi færsluna.
Pálmi Gestsson leikari með meiru setti póst á Fésbókarsíðu sína þar sem hann bendir á umhverfissóða sem náðist á mynd við að henda rusli við Nesjavallaveg upp úr hádegi í dag. Hann brenndi á staðinn en var of seinn því kauði var farinn og skildi eftir sig haug af rusli á vatnsverndarvsvæðinu þar sem stranglega er bannað að henda rusli.
Pálmi fékk myndirnar af verknaðinum sendar en sjálfur tók hann myndirnar af draslinu sem viðkomandi skildi eftir sig.
Nú væri fengur í því ef einhver veit hver kauði er og getur látið viðkomandi yfirvöld vita svo hægt sé að ná í kauða og láta hann þrífa upp eftir sig og fara með ruslið sitt í viðeigandi förgun. Svo væri nú ekki verra ef hægt væri að sekta hann svona pínulítið því kanski mundi hann læra af því.
Innlegg Pálma hér að neðan ásamt myndum hefur verið fjarlægt.
Við minnum svo á kaffistyrktarhnappinn hér hægra megin.
Skoðað: 3526
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



