
Það var ekki gáfulegt innlegg Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins í umræðum um vantraust á dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson þegar hann kom í pontu alþingis og hélt því fram að Píratar marki stefnuna hjá stjórnarandstöðunni, taki forystu í upphlaupsmálum. Flokkur fólksins, Viðreisn og Samfylkingin fylgja á eftir og eiga í fullu fangi með að halda í við Pírata.
Það var hlegið nokkuð hraustlega í salnum og það hæðnislega að orðum Óla Björns og honum sendar nokkrar viðeigandi glósur eins og heyra má í myndbandinu sem fylgir hér að neðan enda kallast þetta að kasta grjóti úr glerhúsi og afvegleiða jafn alvarlega umræður og þarna voru í gangi.
Neita staðreyndum og láta sem málið snerist um minnisblað en ekki lögbrot dómsmálaráðherra.
Hér er “ræðan”
Frú forseti. Sú umræða sem hefur farið hér fram um vantrauststillögu á dómsmálaráðherra er dálítið sérkennileg en um leið pínulítið áhugaverð. Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að stjórnarandstaðan er sannfærð um það að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sé óhæf og eigi að fara frá völdum. Það er eðli stjórnarandstöðu á hverjum tíma. Engin ríkisstjórn og enginn ráðherra má vera án aðhalds stjórnarandstöðu. Málefnaleg gagnrýni er einn af hornsteinum lýðræðis.
En, frú forseti, það skal játað að það hefur komið aðeins illa við mig að skynja það hversu persónuleg andúð á pólitískum andstæðingum er farin að vera ríkjandi þáttur í þessum þingsal á undanförnum mánuðum. Stjórnarandstaðan hefur ranglega haldið því fram að í minnisblaði frá skrifstofu Alþingis til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sé komist að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherra hafi brotið lög. Það er rangt eins og allir þeir sem lesa minnisblaðið geta gert sér grein fyrir. (IngS: Þeir eru þá bara ólæsir.) Hvergi í minnisblaðinu, hv. þingmaður, er því haldið fram að ráðherra hafi brotið lög. Það er rangt að halda því fram að ráðherra hafi bannað Útlendingastofnun að afhenda Alþingi umbeðin gögn. En það vekur athygli mína, frú forseti, að enn einu sinni fæst staðfesting á því að Píratar marka stefnuna hjá stjórnarandstöðunni, taka forystu í upphlaupsmálum. [Hlátur í þingsal.] Flokkur fólksins, Viðreisn og Samfylkingin fylgja á eftir og eiga í fullu fangi með að halda í við Pírata. (Gripið fram í.) Ég heyri það að þetta kemur illa við suma hér. Ég heyri það. En hvort uppskeran verður eins og til er sáð fyrir þessa þrjá flokka sem fylgja Pírötum og leiðbeiningum þeirra og forystu verður þannig að það skili árangri á kjördegi á eftir að koma í ljós. Ég ætla að efast um það.
Hér í þessari umræðu hafa orð verið látin falla, sum stór. Það hafa verið ýkjur og það hafa verið rangar fullyrðingar en það hafa líka komið fram málefnaleg sjónarmið sem öllum er hollt að taka tillit til, ráðherrum og þingmönnum. Ég vona, frú forseti, að okkur auðnist eftir þessa umræðu og atkvæðagreiðslu að snúa okkur að þeim verkefnum sem eru svo mikilvæg og bíða okkar og þjóðin vill að við sinnum.
Og Myndbandið.
Við minnum svo á kaffikaupastyrktarhnappinn hér hægra megin á síðunni.
Skoðað: 2565
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



