Steingrimur J. þarf að svara fyrir þetta

Skoðað: 2962

Myndin er fengin að láni frá Einari B. Bragasyni moggabloggara.

Það gerist stundum að gamlar greinar á netinu öðlast nýtt líf löngu eftir birtingu þeirra og það á við um þá sem tengt er á hér en úrdrættir úr henni eru mjög umhugsunarverðir og í raun þess legir að krefjast verður svara við þeim spurningum sem Ásthildur Lóa Þórðardóttir leggur fram í honum en hún skipar 3. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík.

Málum er þannig háttað að Steingrímur J. Sigfússon forseti alþingis og fyrrverandi formaður Vinstri Grænna var í viðtali á Hringbraut þann 12. apríl síðastliðin þar sem hann talaði um það sem hann væri stoltastur af á sínum stjórnmálaferli og þar sagði hann:

Ætli ég sé ekki stoltastur af því að leggja dag við nótt – og hreinlega allt mitt af mörkum – við að taka þátt í endurreisn landsins sem tókst á endanum með það mildum hætti fyrir samfélagið, verð ég að segja, að vakið hefur athygli stofnana og samtaka erlendis.

Ásthildur var ekki sátt við þessi orð Steingríms og velti upp þeirri spurningu hvort hann væri algjörlega blindur á afleiðingar eigin gjörða þegar hann var fjármálaráðherra í þeirri ríkisstjórn sem tók við eftir efnahagshrunið sem tók við völdum 2009 til 2013.
Þá telur Ásthildur upp nokkrar af þeim afleiðingum sem aðgerðir Steingríms höfðu í för með sér fyrir almenning í landinu eftir hrunið og spyr hvort hann sé stoltur af þeim aðgerðum.

1. Ertu stoltur af því að á „þinni vakt“ og af þínu frumkvæði voru teknar ákvarðanir sem gerðu neytendur, fólk sem fjárfest hafði í húsnæði, hreinlega að „þegnum“ fjármálasatofnanna, algjörlega upp á náð og miskunn þeirra komin?

2. Ertu stoltur af því að á „þinni vakt“ og af þínu frumkvæði, hafi lög- og stjórnarskrárvarin réttindi verið brotin á venjulegu fólki sem tekið hafði fasteignalán og að þau brot standa enn og hafa ekki fengist leiðrétt?

3. Ertu stoltur að því að hafa með aðgerðum þínum valdið því að um 10.000 fjölskyldur hafi misst heimili sín í gin bankana fyrir engar sakir?

4. Ertu stoltur af því að hafa búið svo um hnútana að venjulegt fólk á enga undankomuleið þegar bankamenn brjóta á því?

5. Ertu stoltur af því að hafa byggt sterka skjaldborg utan um bankana?

6. Ertu stoltur af því að hafa í öllum þínum ákvörðunum tekið hagsmuni fjármálafyrirtækja fram yfir hagsmuni almennings?

7. Ertu stoltur af því að hafa látið neytendur taka á sig harða refsingu fyrir afbrot fjármálafyrirtækjanna?

8. Ertu stoltur af aðgerðum ykkar Jóhönnu sem gerðu ekkert nema að lengja í snörunni, þannig að bankarnir gátu mjólkað fjölskyldur þar til ekki var meira að hafa, áður en þeir „opnuðu hlerann“ og létu fólk falla?

9. Ertu stoltur af því að hafa logið að Alþingi í ræðustól og sagt að engir Icesave samningar væru í gangi tveimur dögum áður en skrifað var undir leynisamning í skjóli nætur?

Upphaf allrar þessarar hörmungarsögu virðist liggja í því að árið 2009 lofaðir þú kröfuhöfum bankanna því að ef gengistryggð lán yrðu dæmd ólögleg, yrðu settir á þau Seðlabankavextir. Ertu stoltur af því? Hafðir þú virkilega ekki hugmynd um að kröfuhafarnir sem þér var svona annt um, voru ekki upphaflegir kröfuhafar bankanna sem höfðu afskrifað kröfur sínar strax í kjölfar hrunsins. Þú varst að lofa hrægammasjóðunum þessu og margar heimildir herma að svo hafirðu selt þeim lánasöfnin á minna en 10% af raunvirði. Það þýðir að jafnvel þó lánin hefðu verið vaxtalaus og einvörðungu höfuðstóll þeirra greiddur, hefði ágóði hrægammanna verið 1000% – sem flestum hefði sennilega þótt nóg. Ertu stoltur af því?

Þessar spurningar eiga fullan rétt á sér og það er alveg spurning hvort ekki er komin tími til að krefjast þess að fá svör við þeim hjá “hæstvirtum” forseta alþingis, Steingrími J. Sigfússyni enda hlýtur það að liggja í hlutarins eðli að fá úr því skorið hvort maðurinn hafi verið að vinna með hag almennings að leiðarljósi eða hagsmuni banka, kröfuhafa og auðmanna sem þrátt fyrir að hafa tapað miklu virðast eftir sem áður vaða í seðlum og eiga mikið til enn þær eignir sem þeir höfðu sölsað undir sig en almenningur var látin blæða fyrir.

Almenningur á íslandi á skýlausa kröfu um svör, sérstaklega þær rúmlega 10 þúsund fjölskyldur sem misstu allt sitt. Fjölskyldur sem sundruðust og einstaklingar sem tóku líf sitt í kjölfar þeirra aðgerða sem áður eru nefndar.

Myndin sem fylgir þessum pistli er fengin að láni frá Einari B. Bragasyni og fylgir þessum pistli hans frá árinu 2010

Skoðað: 2962

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir