Ósvífnin er algjör
Skoðað: 3615
Að ljúga að lífeyrisþegum og svíkja alltaf svokallaðar kjarabætur til þeirra er eitt af einkennum þeirra sem þjást af hinni ólæknalegu siðblindu.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra íslands og formaður sjálfstæðisflokksins er holdgefingur siðblindunar því það er ekki hægt að treysta eða trúa einu orði sem frá þessum manni kemur eins og reynslan hefur sýnt og sannað.
Nýjasta dæmið er þessi svokallaða skattalækkun til þeirra sem lægstar hafa tekjurnar samkvæmt grein sem Arnór Ragnarsson skrifar í Moggann í dag.
Eldri borgari sem er með 300 þúsund kr. tekjur í dag fær útborgað kr. 246.627 krónur þ.e. 36,94% skatturinn er 110.820 krónur og persónuafslátturinn 56.447 krónur.
Á næsta ári lítur dæmið svona út: Skatturinn af 300 þúsundunum er 35,04% eða 105.120 krónur og persónuafslátturinn 51.265 krónur. Eftir standa 246.145 krónur, eða 482 krónum minna en á þessu ári. Telur ráðherrann boðlegt að bjóða okkur eldri borgurum upp á þessar falsfréttir og skilur hann nú af hverju fylgið hrynur af Sjálfstæðisflokknum?
Það má líka benda á það að alþingi ákveður ekki alla skatta sem lagðir eru á borgarana. Til er skattur sem heitir fasteignagjöld sem er auðvitað bara aukaútsvar sem bæjarfélögin leggja á íbúana. Það veit enginn fyrir hvað er verið að borga. Þetta kemur auðvitað til af því að hlutur bæjarsjóðanna af skattakökunni er of lítill. Þessi gjöld hækka ár frá ári mun meira en hefðbundnar verðvísitölur.
Ég vona að þetta verði eitthvað lagað í meðförum þingsins og hvar eru hinir herskáu forystumenn verkalýðsforystunnar? Ætla þeir enn einu sinni að láta sína fyrrverandi félaga sitja í súpunni?
Fleiri hafa gagnrínt þessar skattalækkannir og kallað þær svik við lífeyrisþega og lægst launaða fólkið í landinu enda sé verið að hækka skatta en ekki lækka þá.
En við hverju er svo sem að búast frá manni sem hefur ekki hið minnsta fjármálavit og lét afskrifa 130 þúsund milljónir af fyrirtækjum í eigu fjölskyldu sinnar sem hann hafði yfirumsjón með, á reikning almennings á íslandi?
Siðferði Bjarna er nákvæmlega ekki neitt og siðblinda er ólæknandi.
Skoðað: 3615