
Mynd: Gunnar Karlsson
Það var reiður þingmaður sem kom í pontu Alþingis í gær, föstudaginn 31. mars og húðskammaði ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi og aumingjaskap í garð þess fólks sem lægstar hefur tekjurnar á íslandi í dag.
Guðmundur Ingi Kristinsson var ekkert að skafa utan af hlutunum og sagði að fjármálaáætlun væri fædd eftir frestun og mikin rembing en það hefði ekkert fæðst. Eldri borgarar og öryrkjar verða áfram breiðu bök ríkisstjórnarinar en þeir ríku þurfalingar hennar.
Ofsatrúarríkisstjórnin, sem lifir í blindri trú á stjórnmálastefnu sína eins og hún sé einhver töfrabrögð, er hættuleg fátæku fólki. Félagslega heft ofsatrú þeirra á eigið ágæti og á þeirra útgáfu af sannleikanum um hækkanir lífeyrislauna er helber ímyndun af verstu gerð sem bitnar bara á þeim verst settu, í formi vöntunar á mat og öðrum nauðsynjum.
Enn alvarlegra mál er í gangi. Það vantar lyf og enn og aftur fær einstaklingur sem er í hjólastól ekki lyfin sín og er verið að valda honum gífurlegum skaða. Þá stórfjölgar þeim sem geta ekki leyst út lyfin sín vegna sárrar fátæktar. Það er grafalvarlegt mál.
Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin skammist sín?
Skoðað: 1950
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



