
22,5 prósenta hlutur úr Íslandsbanka var seldur í lokuðu útboði í lok mars, mikil umræða skapaðist í apríl með tilheyrandi mótmælum á Austurvelli, skýrsla var þá boðuð í júní, en hefur svo dregist fram í júlí, svo ágúst, svo september og nú segir Ríkisendurskoðun að gera megi ráð fyrir henni fyrir lok mánaðar. Skýringin sem veitt er á töfinni eru annir Ríkisendurskoðunar við önnur verkefni, og svo að úttektin sjálf sé umfangsmeiri en menn gerðu sér grein fyrir í upphafi.
Hefurðu haft ávæning um efni skýrslunnar?
„Nei, ég hef ekki innsýn í það en ég held að svona margra mánaða vinna hljóti að skila góðri yfirsýn yfir það sem máli skiptir.“
Skömmu síðar í viðtalinu segir hann svo:
Er eitthvað stress fyrir henni?
„Neinei, ég tel að það sem við gerðum í ráðuneytinu hljóti að standast ágætlega skoðun. Við höfum auðvitað haft tilefni til að fara aftur yfir það í sumar og verið í samskiptum við ríkisendurskoðun vegna þess, en það eru margir aðrir þátttakendur í þessu ferli sem ég hef ekki jafngóða yfirsýn yfir.“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er ekkert að stressa sig yfir skýrlunni enda varla þörf á því þar sem það er augljóst í viðtali við hann að hann hefur verið í samskiptum við Ríkisendurskoðun í allt sumar en á sama tíma segist hann ekki vita neitt um efni skýrslunar.
Efasemdaraddir eru uppi um sannleiksgildi þeirrar staðhæfingar Bjarna að innihald skýrslunar sé honum hulið enda þekkir fólk þennan mann á öðru en heiðarleika og sannleiksást. Reikna má frekar með að hann, hafi ekki verið með puttana í gerð skýrslunar heldur báðar hendur á kafi upp að öxlum í þeirri viðleitni að koma allri ábyrgð af sölunni frá sér sjálfum þó svo margsinnis hafi verið bent á þá staðreynd að Bjarni braut lög í söluferlinu.
Fastlega má reikna með að þegar skýrslan lítur dagsins ljós að stjórnarandstaðan á Alþingi kalli eftir því að stofnuð verði rannsóknarnefnd á vegum alþingis til að rannsaka söluna á hlut Íslandsbanka enda hefur Ríkisendurskoðun mjög takmarkaðar heimildir til gagnaöflunar og rannsókna á ferlinu sem Rannsóknarnefnd á vegum Alþingis hefði.
Alþingi kemur saman í dag eftir sumarfrí og verður fróðlegt að fylgjast með umræðum um þetta mál í framhaldinu.
Skoðað: 1278
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.




