Hvað er bókun 35 og um hvað snýst hún?

MYND: AI
Við skulum byrja á því að útskýra það með einföldu dæmi og einni sögu sem segir í raun allt um hvað þetta snýst um því þessi litla saga er í raun dómsmál sem viðkomandi tapaði vegna þess að ekki var búið að samþykkja bókun 35 þegar málið var dómtekið.
Í máli um fæðingarorlof hafði kona unnið í öðru EES-ríki áður en hún fór í fæðingarorlof á Íslandi og EES-reglur veittu henni ákveðin réttindi við útreikning greiðslna en íslensku lögin sögðu annað.
Hæstiréttur taldi að íslensku lögin væru svo skýrt orðuð að ekki væri hægt að túlka þau þannig að þau samræmdust EES-reglunni og konan fékk því ekki þau réttindi samkvæmt EES-reglunni sem annars hefðu átt við.Þetta mál er eitt þeirra dæma sem nefnd eru í greinargerð frumvarpsins um hvers vegna skýr forgangsregla sé talin nauðsynleg eða með einföldum orðum:
Ísland hafði samþykkt regluna.
Ísland hafði skuldbundið sig til að veita réttindin.
En önnur íslensk lög stóðu í vegi fyrir því að einstaklingurinn fengi þau.
Bókun 35 á að koma í veg fyrir slíka niðurstöðu þegar skilyrði hennar eru uppfyllt.
Eins og unglingar á mótþróaskeiði.
Miðflokkurinn er eindregið á móti bókun 35. Innan Sjálfstæðisflokksins hafa komið fram ólík sjónarmið um leiðina en Guðrún Hafsteinsdóttir hefur meðal annars talað fyrir því að skoða fyrst svokallaða dómstólaleið meðan Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur lýst því skýrt að hún telji að breyta þurfi íslenskum lögum til að innleiða bókunina rétt. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sömuleiðis sagt eðlilegt að Alþingi lagfæri stöðuna sjálft.
Þannig að þegar talað er um mikla andstöðu stjórnarandstöðunnar er það fyrst og fremst Miðflokkurinn og hluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem þar um ræðir og hegðunin eftir því.
Hvað óttast Miðflokkurinn?
Rök Miðflokksins má í raun sjóða niður í eina spurningu:
Á Alþingi alltaf að geta sett íslensk lög sem gilda framar reglum sem eiga uppruna sinn í EES?
Miðflokkurinn segir í meginatriðum já en færir í raun engin haldbær rök fyrir því.
Flokkurinn heldur því fram að þegar EES-samningurinn var samþykktur árið 1993 hafi Alþingi viljandi ekki sett beina forgangsreglu í íslensk lög en Þess í stað hafi verið sett regla sem segir að íslensk lög skuli, eftir því sem hægt er, túlkuð í samræmi við EES-samninginn.
Miðflokkurinn telur að þetta hafi verið meðvituð málamiðlun vegna stjórnarskrárinnar og fullveldis Íslands. Að breyta þessu nú sé því ekki aðeins tæknileg lagfæring heldur breyting á þeirri grundvallarforsendu sem Alþingi samþykkti EES-samninginn á árið 1993.
Hvar liggur þá raunverulegi ágreiningurinn?
Þegar pólitísku slagorðin og upphrópanirnar eru tekin burt stendur eftir nokkuð einföld spurning.
Ísland hefur þegar tekið EES-reglu upp í íslenskum lögum.
Önnur íslensk lög segja eitthvað allt annað.
Hvor lögin eiga þá að gilda?
Stuðningsmenn frumvarpsins segja:
Reglan sem Ísland samþykkti sérstaklega til að standa við EES-skuldbindinguna á að gilda, nema Alþingi segi sérstaklega annað.
Hörðustu andstæðingarnir segja:
Nei. Ekki á að búa til almenna reglu sem gefur EES-innleiddum lögum þennan forgang, því það breytir valdajafnvæginu og getur farið gegn þeirri fullveldisvernd sem byggt var á árið 1993.
og í því liggur raunverulegur ágreiningur.
Fullyrðingar um að „ESB fái löggjafarvald yfir Íslandi“ ganga lengra en frumvarpið segir.
En spurningin um hvort almenn forgangsregla af þessu tagi sé stjórnskipulega rétt og hvort hún breyti þeirri málamiðlun sem gerð var 1993 er raunverulegt og málefnalegt álitaefni.
Og í svona máli eins og bókun 35 sem á að vera vernd almennra borgara innan EES, hvað segir það í raun um andstæðnga bókunarinnar þegar upp er staðið?
Eru þeir verndarar eða óvinir almennings?
Heimildir
EFTA – frumtexti bókunar 35 við EES-samninginn
https://www.efta.int/sites/default/files/documents/legal-texts/eea/the-eea-agreement/Protocols%20to%20the%20Agreement/protocol35.pdf
Alþingi – frumvarp um breytingu á EES-lögum vegna bókunar 35, 157. löggjafarþing, 3. mál
https://www.althingi.is/altext/157/s/0003.html
Alþingi – nefndarálit utanríkismálanefndar um frumvarpið
https://www.althingi.is/altext/157/s/0449.html
Alþingi – lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið
https://www.althingi.is/lagas/nuna/1993002.html
Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar um bókun 35 – 157. löggjafarþing, þingskjal 449.
Alþingi – Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar
Nefndarálit minnihluta um bókun 35 – rök Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gegn frumvarpinu, 156. löggjafarþing, þingskjal 666.
Alþingi – Nefndarálit minnihluta
Ferill frumvarps um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið vegna bókunar 35 – 157. löggjafarþing, 3. mál.
Alþingi – Ferill 3. máls á 157. löggjafarþingi
Skoðað: 166
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.




