
Það er hreint með ólíkindum að fylgjast með útsendingum frá Alþingi Íslendinga þegar verið er að kynna þingmál, leggja fram frumvörp eða hreinlega ræða málefni sem skipta almenning í landinu verulega miklu máli að þingsalur skuli vera nánast algjörlega tómur þegar þannig stendur á en í bagrunni hljóðrásar má heyra samræður þingmanna og hlátrasköll í hliðarherbergjum.
Hverslags eiginlega andskotans vanvirðing er þetta við þá þingmenn sem eru að leggja fram mál nú eða ræða þau í þingsalnum?
Bera þingmenn sem eru ráðnir af þjóðinni ekki snefil af virðingu fyrir sínum eigin vinnustað, vinnufélögum eða því starfi sem þau eiga að vera að sinna?
Það var átakanlegt þegar Inga Sæland flutti mál sitt um 350 þúsund króna skattleysismörk í þingsal í gær, að heyra mátti í bakgrunni hávært spjall annara þingmanna og hlátur úr hliðarsölum þar sem aðrir þingmenn sýndu því engan áhuga á að sinna því starfi sem þeir eru kosnir til að sinna og fá fyrir meira en milljón í mánaðarlaun auk ýmissa fríðinda og aukagreiðslna.
Er nema von að almenningur í landinu hafi megnustu fyrirlitningu á þessu fólki og beri ekki snefila af virðingu fyrir alþingi þegar ekki einu sinni þingheimur sjálfur gerir það?
Hlusta má á ræðu Ingu hér að neðan.
Skoðað: 2620
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.




