Okurvaxtastefna bankamafíunar skila ofsagróða
Skoðað: 3552
Arion banki birti í dag árshlutauppgjör sitt, en áður höfðu Íslandsbanki og Landsbankinn birt sínar tölur. Arion banki hagnaðist á þessum ársfjórðungi um 19,3 milljarða og jókst hagnaðurinn um 10% frá sama tíma í fyrra þegar hann var 17,4 milljarðar. Hagnaður Íslandsbanka á fyrri árshluta þessa árs nam 10,8 milljörðum og lækkaði um rúmlega 26% úr 14,7 milljörðum í fyrra. Landsbankinn hagnaðist um 12,4 milljarða á fyrri hluta þessa árs, miðað við 14,9 milljarða í fyrra.
Samanlagður hagnaður íslensku viðskiptabankanna var 42,5 milljarðar á fyrri hluta þessa árs, en það er lækkun um tæplega 10% frá sama tíma í fyrra þegar hagnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans var 47 milljarðar á fyrstu sex mánuðum ársins.
Mafía er þetta og mafíustarfsemi kalla erlendir bankar starfsemi íslensku bankana enda er verðtrygging í erlendum bönkum og lánastofnunum ekki þekkt en eins verðtryggingin er sett upp hér á landi þá greiðir fólk verðtryggðu lánin sín allt að þrefalt til baka.
Árið 2013 var samanlagður hagnaður bankanna þriggja á fyrri hluta ársins 31,2 milljarðar en hækkaði á fyrri hluta ársins 2014 upp í 47 milljarða. Í ár var upphæðin sem fyrr segir 42,5 milljarðar.
Samanlagður hagnaður bankanna þriggja nam yfir allt árið 2013 64,6 milljörðum, en í fyrra var hagnaður þeirra 81,1 milljarður.
Og svo syngur almenningur í kór þetta lag hérna með nautnasvip þegar banka og lánastofnanir riðlast á útrifinni görninni á þeim.
Skoðað: 3552