
Það verður seint hægt að segja um íslendinga að þeir séu minnugir og í raun rannsóknarefni út af fyrir sig hvað þeir eru fljótir að gleyma.
Þann fjórða apríl síðastliðin voru á Austurvelli samankomin hátt í 22 þúsund manns sem kröfðust afsagnar ríkisstjórnarinar og kosningar strax en með klækjum og vel úthugsuðu plotti tókst stjórnarflokkunum að halda stöðu sinni með því að fórna þáverandi forsætisráðherra og gera varaformann Framsóknar að forsætisráðherra.
Almenningur var langt í frá sáttur og lifðu mótmælin fram eftir sumri en þó fækkaði jafnt og þétt í þeim hópi uns aðeins fáir stóðu eftir.
Núna, þegar þrír dagar eru til kosninga er engu líkara en almenningur í landinu sé búinn að gleyma ástæðu þess að kosið er hálfu ári áður en kjörtímabilið rennur út. Það er engu líkara en almenningur hafi gleymt því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átti aflandsreikning ásamt konu sinni á Bresku Jómfrúreyjum en neitaði að gangast við því og í viðtali sem tekið var við hann af Sænska Ríkissjónvarpinu gekk hann út úr viðtalinu þegar hann var spurður út í Wintris málið.
En það liggur meira að baki því að fólk mótmælti.
Það kom nefnilega í ljós að tveir ráðherrar í Sjálfstæðisflokkinum voru líka aflandseigendur en þeir hafa harðneitað að gefa nokkuð upp um þær eignir sínar, snúa út úr og/eða hreinlega beina umræðunni annað ef minnst er á það mál. Þetta eru núverandi formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins þau Bjarni Benediktsson og Ólöf Norðdal.
Samt virðist sem fjórðungur kjósenda í landinu ætli að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum á laugardaginn.
Minni íslendinga er nú ekki betra en það.
Skoðað: 5476
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.




