Deprecated: Creation of dynamic property Buy_Me_A_Coffee_Admin::$view is deprecated in /var/www/virtual/jack-daniels.is/skandall.is/htdocs/wp-content/plugins/buymeacoffee/admin/class-buy-me-a-coffee-admin.php on line 58

Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the photo-gallery domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /var/www/virtual/jack-daniels.is/skandall.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6131
Skandall.is - Hjólastóll sem kemst upp tröppur

Hjólastóll sem kemst upp tröppur

Skoðað: 2699

Græjan sem allir hafa beðið eftir.

Það er alltaf gleðiefni þegar kemur fram ný tækni sem auðveldar hreyfihömluðum lífið og að komast um sem frjálsastir ferða sinna.  Við höfum ekki verið nógu dugleg hér á Skandall að benda á slíkar tækninýjungar en við rákumst á umfjöllun um hjólastól sem er nýr af nálinni og gefur hreyfihömluðum enn meira svigrúm til sjálfstæðis og komast á staði sem þeim áður hafa verið lokaðir.

Zack Nelson sem heldur úti Facebooksíðu sem heitir Jerry Rig Everything þar sem hann er með fjölbreytt efni um allskonar tæknimál, meira að segja tók hann gamlan Hummer jeppa, reif úr honum mótorinn og skiptinguna og rafvæddi kvikindið. Hann sýndi allt ferlið og er með það á Youtuberás sinni en einnig er hann á Instagram og síðan sína eigin vefsíðu.

Nóg um kvikindið, snúum okkur að þessum hjólastól og skoðum hvað hann og kærastan hans sem bundin hefur verið við hjólastól í 17 ár segir um þessa nýju tækni.

Myndbandið er í innlegginu hans hér að neðan og við hvetjum alla til að skoða þessa tækni sem þarna er komin fram enda er þetta eitthvað sem á framtíð fyrir sér en þessi stóll kom á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum en hann er í raun enn á tilraunastigi og á örugglega eftir að þróast meira ásamt því að verða enn tæknilegri en nú er.

Við minnum svo á kaffikaupastyrktarhnappinn hér til hægri á síðunni.

Skoðað: 2699

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir