
Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir alla þegar einhverjir einstaklingar leggjast svo lágt að dreifa nektarmyndum af látinni konu og halda því fram að um myndir af Báru Halldórsdóttur sé að ræða og dreifing myndana sé hefnd fyrir að taka upp drykkjuraus þingmanna sem áttu að vera í vinnunni á þeim tíma en sátu þess í stað að sumbli á Klausturbar steinsnar á frá þinghúsinu og rökkuðu þar niður menn, konur og minnihlutahópa eins og fólk ætti að vita og muna eftir.
Bára segir sjálf að henni væri svo sem slétt sama ef um væri að ræða myndir af henni en það sem henni blöskraði og var verst við er að þar eru myndir sem spyrtar eru við hana en eru af látinni konu sem hún þekkir.
Ef þið rekist á myndirnar, ekki senda þær áfram. Ef þið fréttið af þeim látið vita að um látna manneskju er að ræða. Vinsamlegast hjálpið mér að stöðva þetta. Og reynið svo að búa til heim þar sem heimskuleg drusluskömmun er ekki kúl.
Hún lýkur síðan færslunni eins og henni einni er lagið og segir:
Ef einhvern bráðvantar nektarmyndir af mér er ég vel til í smekklega myndatöku gegn góðum styrk til Stígamóta. Reynum annars að vera bara minni asnar.
Við hér á skandall.is tökum undir með Báru um að stoppa dreifngu þessara mynda því þegar siðferðið er komið á það stig hjá mjög andlega veikum einstklingum að nota nektarmyndir af látinni konu til að reyna að niðurlægja aðra þá ætti fólk að leita sér hjálpar og þeir sem þekkja þá sem þetta gera benda þeim á hversu alvarleg veikindi það eru að láta sér svo mikið sem detta það í hug að framkvæma gjörninginn.
Færsla Báru í heild sinni.
Skoðað: 2897
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



