
Maríanna Vilbergs og félagar úr Kambarallýinu halda áfram ferð sinni austur á bóginn í átt að Skógum frá Hveragerði klukkan 16:00 í dag en meiningin er að reyna að komast á Selfoss í kvöld.
Þeim sem fylgjast vilja með á netinu er bent á fésbókarsíðuna Krefjumst betri kjara! Áfram við, öll sem eitt! þar sem sent verður út beint úr fylgdarbíl en einnig ætti að vera hægt að fylgjast með á síðu ferðabæklinga eða þá hér á Skandall.is þegar útsending hefst.
Allir sem vilja og hafa tök á að fylgja Maríönnu í þessari ferð hennar eru velkomnir og gaman væri að sjá fleiri einstaklinga í hjólastólum sem hafa getu til, fylgja henni en einnig að fatlaðir og ófatlaðir mæti á upphafs og áfangastaði til að hvetja hana áfram.
Þetta er styrktarferðalag fyrir alla einstaka einsatklinga sem margir hverjir eru fastir sem fangar heima hjá sér vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum fatlaðra og þeirra sem eiga við geðfatlanir að stríða og fá ekki þá aðstoð og hjálp sem þeir þurfa.
Söfnunin er einnig liður í því að safna fyrir hjálpartækjum fyrir fatlaða sem fá synjun frá Sjúkratryggingum og TR af einhverjum ástæðum eða hafa ekki efni á að leigja hjálpartækin frá Sjúkra eða kaupa sér sín eigin, en það er því miður staðreynd að tekjur öryrkja eru svo lágar að þeir hafa margir hverjir ekki efni á að leigja sér hjálpartæki nema þá að skera niður í mat og nauðsynjum eða lyfjum.
Það er bara staðreynd.
Við hvetjum alla til að fylgjast með og taka þátt í að hvetja Maríönnu áfram með því að mæta á upphafsstaði eða endastöð og þeir sem hafa tök á því að fylgja henni á ferðalaginu.
Skoðað: 2938
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



