Sunnudagshugvekjan: Sjálfstæð þjóð með þrælslund?

Sunnudagshugvekjan: Sjálfstæð þjóð með þrælslund?

Lýðræði virkar ekki ef kjósendur muna aðeins síðustu tvær vikurnar fyrir kosningar. Það virkar ekki ef flokkar geta svikið loforð, þjónað þröngum hagsmunum, talað niður til almennings og mætt síðan aftur með nýtt slagorð eins og ekkert hafi gerst.