Deprecated: Creation of dynamic property Buy_Me_A_Coffee_Admin::$view is deprecated in /var/www/virtual/jack-daniels.is/skandall.is/htdocs/wp-content/plugins/buymeacoffee/admin/class-buy-me-a-coffee-admin.php on line 58

Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the photo-gallery domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /var/www/virtual/jack-daniels.is/skandall.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6131
Skandall.is - Sex atriði samspils spillingar og stjórnmála í Samherjamálinu

Sex atriði samspils spillingar og stjórnmála í Samherjamálinu

Skoðað: 2934

Gunnar Smári Egilsson Sósíalistaforingi tekur saman sex atriði sem sýna samspil spillingar og stjórnmála og hvernig Samherjahneykslið opinberar það.

1. Íslenskir kvótagreifar múta stjórnmálafólki og embættismönnum til að fá aðgengi að auðlindum almennings og greiða fyrir það hrakvirði.
2. Samherji gerir ekki út á hinn svokallaða markað, frekar en önnur stórfyrirtæki. Starfsemi þess snýst um að komast yfir eignir almennings í gegnum spillt stjórnvöld. Eigendur stórfyrirtækja auðgast á að arðræna almenning í skóli spilltra stjórnvalda.
3. Stór hluti af arðráni auðvaldsins er dreginn upp úr samfélögunum, fluttur burt og falinn í aflöndum.
4. Í Namibíu er uppljóstrurum veitt vernd en ekki hér. Kvótakerfið þar á að tryggja að almenningur fái sannvirði fyrir auðlindir sínar, en svo er ekki hér. Ráðherrar segja af sér vegna tengsla við Samherja í Namibíu en ekki hér. Samherji greiðir hærra verð fyrir kvótann yfir borðið í Namibíu en íslenskt stjórnmálafólk innheimtir fyrir hönd almennings fyrir íslenskan kvóta. Ísland er á lista yfir ríki sem ekki hafa varnir gegn peningaþvætti og skipulagðri glæpastarfsemi, en ekki Namibía. Mútur kvótagreifa til stjórnmálafólks hafa verið afhjúpaðar í Namibíu, en ekki hér (en í rannsóknarskýrslu Alþingis kom fram hvernig einkabankarnir báru fé á stjórnmálafólk).
5. Í umræðum á þingi og í fjölmiðlum eftir sýningu Kveiks á Samherja-málinu hefur komið í ljós að stærsti hluti þingheims er á sömu línu: Þetta er einangrað mál í útlöndum, tengist samskiptum kvótagreifa við íslenskt stjórnmálafólk ekki neitt, eigi að vera til meðferðar hjá saksóknara og eigi ekkert erindi inn í almenna pólitíska umræðu. Þetta er fólkið sem þiggur mútur eða tekur línuna frá þeim sem það gera.
6. Ísland er frumstætt lýðræðisríki þar sem þau sem komist hafa yfir auðlindir almennings hafa öll völd. Það kallast oligarchy, þjófræði.

Skoðað: 2934

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir