
Þessa dagana logar allt í illdeilum á Alþingi vegna breytinga á lögum um almannatryggingar þar sem breytingar á 62. grein laga um almannatrygginga verður breytt á þann veg að hætta að miða hækkun bóta almannatrygginga við launaþróun en miða þess í stað við launavísitölu.
Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi hafa farið mikin og sótt sérfræðiþekkingu til hinna merkustu hagfræðinga landsins sem og til yfirmanna Seðlabankans sem allir segja að þetta rústi hreinlega efnahag landsins þar sem bætur almannatrygginga muni hækka langt umfram lægstu laun í kjölfarið.
Þetta verði síðan til þess að láglaunafólk nenni ekki lengur að vinna og “skrái” sig á örorku til að geta haft það sem best með því að lifa á kerfinu og vinnandi fólki.
Þessi fáránlegu rök stjórnarandstöðuþingmanna hafa verið hrakin með rökum og staðreyndum en þeir neita að hlusta en vaða áfram líkt og tryllt nautahjörð í drullusvaði í eigin martraðarsýn sem þeir hafa komið sér upp í þessu máli.
Eigum við ekki aðeins að skoða raunhæft hvernig þetta kemur til með að vera?
Það er allt útskýrt í meðfylgjandi myndbandi sem ég hvet alla til að horfa á til enda.
Skoðað: 372





