ESB eða ekki. Nokkrar staðreyndir út frá rangfærslum.
Örfáar rangfærslur um ESB

ESB eða ekki. Nokkrar staðreyndir út frá rangfærslum.

Örfáar rangfærslur um ESB

Það er ótrúlega mikið um rangfærslur og hreint út sagt, hreinar og klárar lygar um það að Evrópusambandið mundi taka allt yfir ef íslandi gengi í ESB og að þjóðin yrði hreinlega arðrænd og almenningur stæði eftir slippur og snauður í kjölfarið.
En er það raunin?

Á X.com, (áður Twitter) heldur einn notandi því fram að ESB sem mun taka yfir stjórnun fiskveiða, landbúnað, æðsta dómsstig, meirihluta löggjafarvalds ásamt 30+ milljörðum í beinum greiðslum og bætir svo við í lokin að á móti muni ESB láta Viðreisn fá skattfrjálsa vinnu í Brussel.

Þetta er bara eitt dæmið um þann áróður og lygar sem sérhagsmunagæsluliðar auðvaldsins á íslandi heldur fram í stað upplýstrar umræðu og raunverulegan tilgang með inngöngu í ESB.
Skoðum nokkrar staðreyndir sem koma hlutunum í rétt samhengi því nú þegar eru um 70–80% af efnahagslöggjöf Íslands tengd EES-reglum, sem þýðir að Ísland er þegar undir töluverðri evrópskri réttarheild – þó ekki undir beinu dómsvaldi ESB.

Fyrir það fyrsta mundi ESB ekki taka yfir stjórn fiskkveiða heldur mundi kvótakerfð verða samræmt að fiskveiðistjórnunarkerfi ESB með fullri samvinnu íslendinga þar sem þeir hefðu bæði þingmenn og ráðherra í stjórn ESB. Í

dag fylgir Ísland stórum hluta ESB-löggjafar í gegnum EES-samningurinn – en án atkvæðisréttar. Aðild myndi:
Veita fullan atkvæðisrétt í ráðherraráði ESB
Gefa sæti á Evrópuþinginu
Auka formlegt samningsvald í mótun reglna sem Ísland þarf hvort sem er að innleiða.

Landbúnaður:
Tollavernd íslensks landbúnaðar myndi minnka.
Samkeppni myndi aukast.
Bændur fengju CAP-styrki en markaðurinn yrði opnari.

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið yrði Dómstóll Evrópusambandsins (CJEU) æðsti túlkunardómstóll í öllum málum sem falla undir ESB-rétt. En hann myndi ekki taka yfir allt dómsvald á Íslandi.

Í öllum ESB-ríkjum gildir þetta kerfi:
Innlendir dómstólar dæma málin fyrst.
Ef spurning vaknar um túlkun ESB-réttar, getur málið farið til CJEU. Úrskurður CJEU er bindandi fyrir innlenda dómstóla. Þetta kallast forgangur ESB-réttar (supremacy of EU law).

Ef ísland gengi í ESB:
Hæstiréttur yrði áfram æðsti dómstóll í flestum málum Hann myndi halda yfirráðum yfir:
sakamálum
eignarrétti
fjölskyldurétti
flestum stjórnsýslumálum stjórnarskrármálum
almennum einkamálum

Ef mál tengist ESB-rétti, til dæmis:
samkeppnisrétti
innri markaði
neytendarétti
umhverfisrétti
fjármálareglum
sumum vinnurétti þá gæti Hæstiréttur þurft að vísa spurningu til Dómstóls Evrópusambandsins og túlkun hans væri endanleg.

Í gegnum EES samninginn er ísland þegar undir EFTA dómstólnum og munurinn er sá að í núverand kerfi túlkar EFTA dómstóllinn EES, álit oftast tæknileg eða ráðgefandi og ísland er EKKI með atkvæðisrétt í reglum en með ESB aðil þá túlkar CJEU ESB réttinn, dómar bindandi og það sem er mest um vert, ísland hefur atkævðisrétt.

Ef Ísland gengi í ESB:
Hæstiréttur Íslands yrði áfram æðsti dómstóll í flestum málum íslenskir dómstólar myndu áfram dæma málin íslensk lög giltu áfram í flestum málaflokkum en Dómstóll ESB hefði síðasta orðið í túlkun ESB-réttar.

Áhugaverð staðreynd:
Í dag eru um 70–80% af efnahagslöggjöf Íslands tengd EES-reglum, sem þýðir að Ísland er þegar undir töluverðri evrópskri réttarheild, þó ekki undir beinu dómsvaldi ESB.

Að lokum skulum við bæta við smá staðreyndum um hvað innganga í ESB mundi hafa á peningastefnu íslands og bankana.

Áhrif ESB-aðildar á íslenska fjármálakerfið yrðu djúpstæð.

Helstu kostir gætu verið:
lægri vextir
stöðugri gjaldmiðill
meiri samkeppni í bankakerfi
auðveldara að fá fjármagn.

Helstu gallar gætu verið:
minni sjálfstæði í peningastefnu
minni stjórn á gengismálum
meiri áhrif alþjóðlegra fjármálasveiflna.

Minna sjálfstæði í peningastefnu og gengismálum væru í raun kostur þegar upp er staðið enda er sérhagsmunagæsla auðugasta fólksins á íslandi baggi á þjóðinni en með inngöngu í ESB og upptöku Evru væri hægt að koma skiki á þessi mál í eitt skipti fyrir öll.

Skoðað: 8

Athugasemdir

Engin umræða í gangi enn sem komið er. Ert þú ekki til í að byrja?

Eitthvað sem þú villt segja?

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.