
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins var tekinn í bakaríið í morgunn af þeim Rúnari Frey Gíslasyni og Loga Bergmann Eiðssyni sem stjórna þættinum á Bylgjunni.
Þar sagðist Bjarni ekki skilja hvað fólki gengi til að senda honum puttann með þessum hætti en hann þurfti á tímabili stuttu eftir síðustu þingkosningar að þola ítrekuð „fokk-jú“ merki frá sama strætisvagnsstjóranum fyrir utan Stjórnarráðið.
Hann segist síðan ekkert skilja í af hverju fólk þurfi að tjá sig með þessum hætti.
Við á Skandal segjum nú bara við Bjarna greyið, hversu heimskur getur þú eiginlega verið ef þú skilur ekki þessi skilaboð frá almenningi?
Þess má svo að lokum geta að Bjarni er grjótharður aðdáandi kvikmyndarinar “The Godfather” og horfir á hana aftur og aftur og þá sérstaklega þegar hann verður fyrir hvað mestum árásum í pólitíkinni.
Við á Skandall.is erum á því að hann horfi á myndina nánast daglega um þessar mundir því öll hans framkoma og hegðun í þinginu minnir helst á guðföður sem vill fá allt fyrir sig, sína fjölskyldu og vini á kostnað almennings í landinu, enda hegðunin þannig.
Kanski Bjarni ætti að prófa að hlusta á folkið í landinu og haga störfum sínum á svolítið annan hátt heldur en hefur gert hingað til, því öll hegðun hans, framkoma og störf hefur ekki verið hægt að líkja saman við neitt nema ef vera skyldi einmitt glæpasamtökin sem eru í daglegu tali kölluð mafía.
Þá kanski mundi fólk hætta að senda honum fokkjú fingurinn með heiftarsvip en í stað þess brosa og veifa.
Nánar má lesa um þetta með því að smella hérna og hlusta á viðtalið við Bjarna.
Skoðað: 4859
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.



