Sumt fólk lærir ekki nema á harða mátann og neitar að taka tilsögn og fara að þeim einföldu reglum sem gilda í þessu þjóðfélagi
Unga konan sem fjallað var um í þessum pistli og myndband var af hefur lært sína lexíu.
Eftirfarnadi skilaboð fengum við í gegnum Facebook frá eiganda bílsins:
Sæll og blessaður ég hef samband við þig út af Myndbirtingu á Skandal þar sem bíllinn minn kemur við sögu þar sést ung kona keyra og senda eða lesa skilaboð! unga konan er búin að læra sína lexíu ég er ekki að reyna að afsaka þetta svona á ekki að koma fyrir. Sá sem setti þetta inn hefur tekið þetta út af sinni síðu. eftir að unga konan talaði við hann. Skilaboðin með þessari myndb hefur skylað sér hér á heimilinu unga konan er alveg niðurbrotin og hef ég verið með hana í fanginu,mætti ég byðja þig að taka þetta út (ef þú hefur sett þetta inn) kær kveðja Jóhanna
Að sjálfsögðu verðum við þessari beiðni og eyðum myndbandinu og færslunni sem var hér áður enda er alltaf gott þegar fólk sér að sér og skilur hvað það hefur gert rangt.
Við hjá Skandall.is óskum ungu konunni góðs gengis í umferðinni í framtíðinni og vonum svo sannarlega að hún láti sér þetta að kenningu verða og vari sína vini og kunningja við hvesu alvarleg og hættuleg þessi hegðun hennar var, því þetta var jú bara myndband af henni að texta á síman bak við stýrið en þetta hefði geta verið mynd þar sem beyglað hjól og brotinn barnslíkami blasti við. Sem betur fer fór ekki svo illa og enn og aftur ítrekum við það, að hún vari sína vini og félaga við að svona hegðun bak við stýrið getur gert viðkomandi að morðingja.
Skoðað: 34599
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.


