Við höfum verið að notast við ChatGPT gerfigreind hér á Skandall.is í nokkurn tíma og því miður höfum við rekið okkur á nokkra veggi í því sambandi, meðal annars það að vera ekki með heimildaskrá neðst í pistlum eins og við gerum núna og við tilkynntum ekki í upphafi að við værum að notast við gerfigreind til að afla upplýsinga, ná í tengla og sannreyna það sem gerfigreindin hefur verið að gera fyrir okkur.
Það að læra að nota gefirgreindina á réttan hátt til að afla upplýsinga, staðreynda og vísun í heimildir með tenglum í grunnupplýsingar hefur verið áskorun fyrir okkur en líka griðarlega verðmætur lærdómur í leiðinni þar sem það er mikill fjöldi fólks sem neita algjörlega að samþykkja það sem kemur frá gerfigreindarforritum, og vissulega er rétt að vera tortryggin á þessa tækni því hún er langt því frá að vera fullkomin en þegar fordómarnir gagnvart tækninni eru byggðir á hræðslu, tortryggni og fordómum þá náum við ekki að þroskast og læra og þar af leiðandi stöðnum við.
Mikið af fodómunum er vegna orkunotkunnar gerfigreindarforritana en þessi tækni notar mikla orku og það er farið aðeins í gegnum það í þessari grein og eins hvernig orkan verður til ásamt því hvernig gerfigrend er notuð því þar skiptist algjörlega í tvö horn.
Við ákváðum að prófa þessa leið eftir að hafa lesið okkur talsvert til um gerfigreindina og þá sérstaklega hvað væri ,,rétt” notkunn á henni og hvað væri ,,röng” notkunn þar sem mikið af efni sem ratar inn á samféalgsmiðla er djúpfalsað með aðstoð gerfigreindar og verður aðeins til þess að dýpkda fordómóna.
Síðan er það umræðan um höfundarvarið efni sem ratar þar inn og það líka spurning sem þarf að velta upp, td. þessar myndir sem við höfum látið búa til fyrir okkur, eru þær að sækja grunninn í höfundarvarið efni? Það er kanski eitthvað sem þarf að skoða betur.
En öllu gerum við mistök eða förum of hratt af stað án þess að hugsa hlutina til enda og það kemur bara í hausinn á okkur seinna.
Ef við lærum ekki af því og bætum okkur ekki í framhaldinu þá verður okkur ekki vært í því sem við erum að gera og missum traust þeirra sem hafa haldið okkur uppi og þá spyr ég. Er þá ekki betra að læra af mistökunum, leiðrétta þau þar sem það er hægt, biðjast afsökunar, bæta sig og gera hlutina betur?
Í framhaldi af því þessum mistökum, fórum við í það að skoða og lagfæra þá pistla sem þessar upplýsingar vantar í og eru tenglar á þær greinar sem við höfum þegar farið í leiðréttingar og uppfærslur á, hér að neðan.
Þetta tekur smá tíma vegna annara verkefna en við erum byrjuð og þetta er það sem er komið nú þegar.
Mundi ESB aðild eyðileggja viðskiiptasambönd utan Evrópu?
Fimm rangfærslur Guðrúnar Hafsteinsdóttur um ESB
Fimm rangfærslur Sigmundar Davíðs um ESB og staðreyndir sem fella þær
Þjóð á skuldahlaupabretti. Okurvaxtakerfið sem íslensk stjórnvöld verja
Strandveiðar og ESB, gæti aðild Íslands í raun styrkt smábátaútgerð?
Uppfært: Fiskimiðin, ESB og staðreyndirnar: Hvað gæti Ísland í raun samið um?
Skoðað: 34
Jack Hrafnkell Daníelsson er fæddur í lok janúar 1965 í Reykjavík en ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi.
Ég hef alltaf haft mikin áhuga á fréttum og stjórnmálum ásamt öllu því sem fylgr því en eitt af því er þegar stjórnmálafólk getur ekki verið heiðarlegt.
Ég hef á síðari árum einbeitt mér mest að skrfum um málefni öryrkja, aldraðra og þeirra sem erfiðast eiga með að verja sig gagnvart því gríðarlega óréttlæti sem þessir hópar þurfa að búa við.
Ég hef alltaf átt erfitt með að horfa upp á óréttlæti og slæma framkomu við minnihlutahópa því stofnaði ég þennan vettvang til að leyfa rödd þeirra að heyrast í þjóðfélaginu.
Í seinni tíð hef ég meira einbeitt mér að því að skoða staðreyndavillur í umræðunni, benda á þær og sýna fram á staðreyndir með heimildum, tenglum og rökum.
Fáðu meira frá Skandall.is
Komdu í Áskrift og fáðu nýjasta efnið í tölvupósti.




