Skandall.is er sjálfstæður íslenskur netmiðill sem birtir fréttir, greiningar og skoðanir um samfélagsmál, stjórnmál, efnahag, tækni og önnur málefni sem varða almenning ásamt ýmsu öðru efni.
Markmið miðilsins er að miðla upplýsingum á hlutlausan, skýran, gagnsæjan og ábyrgðarfullan hátt.
Áhersla er lögð á að byggja umfjöllun á staðreyndum, frumheimildum þegar mögulegt er, og gagnrýninni greiningu á opinberum gögnum og samfélagslegri þróun.
Skandall hefur undanfarið notast við gerfigreind í staðin fyrir hefðbundnar leitarvélar til að leita upplýsinga og heimilda um ákveðin málefni, látið hana aðstoða við greinarskrif, vísa í heimildir sem við sannprófum með því lesa þær og ef þær gefa ekki nógu skýra mynd, þá er reynt að hafa samband við einstaklinga sem hafa þekkingu á viðkomandi efnistökum án þess að þeir séu hlutdrægir á nokkurn hátt en einnig höfum beðið gerfigreindarforrit, alltaf fleiri en eitt eða tvö með sömu setningum, sama orðalagi og gefnum forsendum, að staðreyndaprófa þegar allt annað þrýtur og sannprófa síðan að það sé rétt með sama hætti og áður er lýst.
Engin opinber „staðreyndaprófun“ er í boði fyrir íslenskar fréttasíður, netmiðla né bloggara sem vilja láta taka sig alvarlega eins og staðan er í dag.
Besti árangurinn næst með vandvirkri sjálfskoðun + góðum heimildum + ytri álitum frá fólki sem er ósammála. Þannig minnka líkurnar á mistökum.
Skandall.is starfar sem sjálfstæður útgáfumiðill einkaeigu og er ekki í eigu né tengdur neinum stjórnmálaflokki, hagsmunasamtökum eða annarra aðila sem hafa áhrif á ritstjórnarlegt sjálfstæði miðilsins.
Skandall.is er rekinn og kostaður af eiganda úr eigin vasa en einnig með frjálsum framlögum í kaffikaupasjóð þar sem fólki er frjálst að leggja fáeinar krónur í púkkið.
Skandall.is er að tengja sig meira við Google auglýsingar í þeirri von að fá smá tekjur til að standa undir kostnaði við hýsingu og lén.
Ritstjórnarstefna
-
Við reynum að birta staðreyndir með heimildum þar sem hægt er.
-
Skoðanir eru greinilega merktar sem slíkar.
-
Við tökum á móti ábendingum um villur og leiðréttum þær opinberlega.
Heimildavinna og nákvæmni
Við gerð frétta og greininga leitast Skandall.is við að byggja umfjöllun á:
opinberum gögnum
frumheimildum
skjalfestum upplýsingum
og áreiðanlegum heimildum
Þar sem við á eru heimildir tilgreindar í texta.
Með tenglum á frumgögn.
Heimildarsafni í lok greinar.
Gagnsæi og ábyrgð
Skandall.is leitast við að starfa með gagnsæi og ábyrgð gagnvart lesendum.
Ef villa kemur í ljós birtum við leiðréttingu efst í grein með dagsetningu og skýringu
Lesendur geta sent ábendingar, athugasemdir eða leiðréttingar til ritstjórnar.
Aðgreining efnisflokka
Skandall.is birtir efni í eftirfarandi flokkum:
Fréttir
Staðreyndamiðað efni byggt á heimildum og upplýsingum um atburði og málefni líðandi stundar.
Aðsendar greinar.
Allit geta sent okkur greinar til birtinga á Skandalli.is en við áskiljum okkur þann rétt að velja eða hafna birtingu þeirra á miðlinum.
Nafnlausir pistlar fást ekki birtir.
Greiningar
Ítarleg umfjöllun og samhengi byggt á gögnum, upplýsingum og mati á þróun mála.
Skoðanir
Persónulegar skoðanir höfunda sem endurspegla afstöðu þeirra en ekki endilega ritstjórnar Skandall.is.
Tengiliðaupplýsingar
Ritstjórn Skandall.is: Jack H. Daniels.
Eigandi: Jack H. Daniels
Starfsmen: Jcak H. Daniels
Netfang: skandall@skandall.is
Lögsaga og útgáfa
Skandall.is er íslenskur netmiðill og starfar samkvæmt íslenskum lögum, þar á meðal lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, eftir því sem við á og fer eftir lögum og siðareglum Blaðamannafélags íslands.
Uppfært: Föstudagur 20. mars, 2026 – 11:31 Jack Daniels