Bæjarstjórn sem ekkert hlustar eða gerir nema það sem henni sýnist

Skoðað: 682

Daníel.

Málefni Fjöliðjunar á Akranesi virðast standa í stað inni í Bæjarstjórn Akraness og virðist sem það verði gerðar þær breytingar sem starfsfólk Fjöliðjunar sem starfsfólk hennar fór fram á, í mótmælum þann 15. desember á síðasta ári og virðist svo sem bæjarstjórn Akraness haldi sínu striki að byggja samfélagsmiðstöð í íbúðarblokk þar sem á að blanda saman tómstundastarfi fyrir börn, unglinga og fatlaða.

Einn af þeim sem hefur látið sig málefni fjölsmiðjunar varða er Daníel Guðrúnarson en hann og eiginkona hans, Kristjana Guðrún Björnsdóttir hafa um nokkurra ára skeið starfrækt útvarpsstöðina Skagarásin á netinu þar sem þau halda úti nokkrum rásum í tónlistarflutningi og að sama skapi eru þau með þætti á aðalrás stöðvarinar.

Daníel er þolinmóður gagnvart aðgerðarleysi og litlum og lélegum svörum frá bæjarstjórninni á Akranesi varðandi málefni Fjöliðjunar og hann hefur sínar hugmyndir um hvernig best væri að koma málum þannig fyrir að allir gætu sætt sig við þá í stað þess að vaða áfram á eigin forsendum og hlusta ekkert á þá sem eiga allt sitt undir því að Fjöliðjan sé á góðum stað, með góðu aðgengi og að þar geti allir unað saman við leik, afþreyingu og störf.

Hér að neðan er pistill Daníels.

Nú fóru fram mótmæli þann 15. desember 2022 og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ekki ennþá hlustað á okkur. Bæjarstjórnin er föst á því að byggja Samfélagsmiðstöð sem verður á neðstu hæð íbúðarblokkar. Í samfélagsmiðstöðinni verður frístundamiðstöðin Þorpið sem er tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.

Hvað eiga börn og fatlaðir sameiginlegt?

Ekki neitt.

Fötluðum hefur oft á tíðum verið strítt af börnum og hefur það marg oft sýnt sig að börn og fatlaðir eiga ekkert sameiginlegt. Áður en fyrrum húsnæði Fjöliðjunnar brann voru teikningar gerðar af tilvonandi stækkun á húsnæðinu.

Hvers vegna eru þær teikningar ekki notaðar við byggingu á nýja húsnæðinu?
Bæjarstjórn hefur ennþá tíma til að endurskoða ákvörðun sína varðandi húsnæði fyrir Fjöliðjuna og framkvæma frekar upprunalega ákvörðun um stækkun á Dalbrautinni.

Önnur lausn er að Akraneskaupstaður kaupi allt húsnæðið á Smiðjuvöllum 28, þar sem starfsemi Fjöliðjunnar er að hluta til í núna.
Flöskumóttakan og Búkolla yrðu þá vel staðsett með gott aðgengi fyrir íbúa bæjarins.

Með þessu fyrirkomulagi gætu allir starfsmenn Fjöliðjunnar starfað saman undir sama þaki og allir væru glaðir.
Það særir okkur að það standi til að slíta okkur samstarfsfélagana í sundur.

Væri það ekki frábær lausn að bærinn keypti Smiðjuvelli 28?
Ég myndi segja það, en bæjarstjórnin þykist vita betur og meira en við sem vinnum í Fjöliðjunni.

Mér var sagt að fulltrúar bæjarstjórnar sinna einnig öðrum störfum en ég legg til að þeir kynni sér almennilega starfsemi Fjöliðjunnar með því að vinna í 2-3 daga hjá okkur.

Eins og staðan er núna er starfsemi Fjöliðjunnar í tveimur húsnæðum sem hefur verið okkur virkilega erfitt.
Til stóð að það fyrirkomulag yrði tímabundið en miðað við áætlun bæjarstjórnar verður það varanlegt.

Hvernig er kostnaðurinn við að vera í tveimur húsnæðum minni en að leyfa okkur að vera öllum saman í einu húsnæði?
Hvernig væri að við skagamenn færum að sýna samstöðu og láta í okkur heyra?
Eða er ykkur alveg sama um starfsemina okkar?

Við tökum undir með Daníel og minnum á kjörorðið; EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!!!

Skoðað: 682

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir