Tilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun

Skoðað: 1801

VR.
Skjáskot.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er ekkert sérlega hress með það tilboð sem verkalýðsfélag hans fékk frá Samtökum Atvinnurekenda á dögunum.
Hann birti harðorða færslu á Facebook í dag þar sem hann segir tilboðið vera hreina klára kaupmáttarrýrnun og færir rök fyrir því.

Færsla Ragnars.

Tilboð SA til félagsmanna VR.

15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000 kr.!!

Sérstök 5.000 kr. Hækkun á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 kr.

Verðbólguspá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6%.

Á meðan lýðskrumarar og aðrir lobbíistar sérhagsmuna tala um nútíma hagfræði, kulnun í hagkerfinu eða skrumskæla kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar eins og kom fram í málflutningi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar staðreyndir.

Tilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun!

2,5% hækkun launa í 3,6% verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum!

15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborgað!

Leigufélögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þúsunda og dæmi er um einstæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigufélaginu þar sem tilkynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samningi. SA býður þessum félagsmanni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mismunurinn er 11.025kr. sem uppá vantar.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 82%.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hækkuðu um 45% og yfir.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 15.000 kr. á meðan laun framkvæmdastjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama tilboði.

Stjórnvöld og SA tala um kólnun í hagkerfinu, ábyrgð og svigrúm á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækka um 1.700.000 kr. Á mánuði, eða 82%, og þykir sú hækkun hófleg í núverandi árferði að mati stjórnenda bankans.

Í kröfugerð VR er sama krónutöluhækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mánuði á þremur árum.

Fullyrðingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði.

Björn Bjarnason skrifar harðorðan pistil á síðu sína og ræðst af mikilli hörku á verkalýðsforistuna án þess að vera búinn að kynna sér hlutina en étur upp lygaþvættinginn frá Herði Ægissyni ritstjóra markaðarins á vísi.is.
Gamla steingerða risaeðland í sjallamafíunni sparar ekki stóryrðin og sakar verkalýðsforingjana um svik við umbjóðendur sína, félagsmenn verkalýðsfélagana.

Pistil Björns má lesa hérna.

Skoðað: 1801

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir