Svona virka stjórnmálin

Skoðað: 1869

Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann:
“Hvað eru stjórnmál pabbi?”
Pabbi hans svaraði:
“Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt:
Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðvaldið.
Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla hana Stjórnvaldið.
Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig Almenning.
Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga og litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina.
Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.
Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum.
Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleyjan hans er blaut og mikil fýla af henni.
Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi.
þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst.
Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn á fullu í rúminu meðbarnfóstrunni.
Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn:
“Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á.”
Gott segir faðirinn.  Segðu okkur frá því.
þá sagði Nonni litli:
”Jú sjáðu til.  Meðan Auðvaldið riðlast á Öreigunum er stjórnvaldið steinsofandi, almenningur er hundsaður og framtíðin er í djúpum skít!”

Skoðað: 1869

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir