Samantekt um staðreyndir á facebook

Skoðað: 3340

Sjálfstæðismenn í hnotskurn.

Á fésboḱarsíðunni “kjósa” er búið að taka saman nokkuð myndrænt helstu stefnumál Sjálfstæðisflokksins þar sem þau eru sett í rétt samhengi.
Sem dæmi um stefnumál Sjálfstæðisflokksins má nefna skattamál en Sjáflstæðisfólk hefur æpt og gargað af öllum kröftum að komist VG til valda muni sá flokkur hækka skatta á almenning í landinu sem aldrei fyrr.
Staðreyndin er hins vegar sú að komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda þá munu þeir leggja ótrúlega miklar álögur á almenning í formi nýrra skatta og hækka þá sem fyrir eru.

Tökum dæmi:

Sjálfstæðisflokkurinn er Skattaflokkur Íslands
Það hafa þeir sýnt í verki með rúmlega 50 skattahækkunum undanfarin ár.

Og þetta er ekki búið.

Mestu skattahækkanir í sögu Íslands hafa verið á vakt sjálfsæðisflokksins.

Svo skulum við svona í restina sjá hvernig flokkurinn hefur staðið að tekjuskattsmálum, en þar má glögglega sjá hvernig skattbyrgði þeirra lægst launuðu hafa hækkað meðan skattar á þá hæstlaunuðu hafa lækkað.

Skattaþróun milli tekjuhópa.

Eigum við nokkuð að vera að tala um að vinstri flokkarnir séu óvinurinn þegar kemur að skattamálum í landinu?
Við skulum bara sleppa því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því þeir eru ekki að fara að vinna að almannahag nái þeir völdum einu sinni enn.

 

Skoðað: 3340

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir