Má bjóða þér undir pilsfaldinn?

Skoðað: 10398

Vigdís Hauks býður Össuri undir pilsfaldinn hjá sér.
Vigdís Hauks býður Össuri undir pilsfaldinn hjá sér.

Áhugaverð uppákoma varð á Alþingi í dag þegar alþingismenn tóku aftur til máls um fjárlög næsta árs eftir fundarhlé í hádeginu.

Össur Skarphéðinsson , þingmaður Samfylkingar, tók fyrstur til máls eftir hlé og hafði staðið í ræðupúlti í um hálfa klukkustund og skotið hart á stjórnarflokkana áður en formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, ákvað að skerast í leikinn.

Össur hafði þá skömmu áður mært verk fyrri ríkisstjórnar og sagt Sjálfstæðismenn vera „skíthræddasta“ við Steingrím J. Sigfússon. „Vegna þess að þeir hafa ekki þorað að koma hér og reyna að hrekja eitt einasta orð af því sem að hann var að segja hér um það sem verk fyrri ríkisstjórnar – enda er það ekki hægt. Nú er einfaldlega búið að klappa það í stein, ríkisreikninga þriggja ára,“ sagði Össur og bætti við:

Þannig að það er sama þó að menn flýi hér í felur í afherbergi og leiti skjóls undir pilsfaldi háttvirts formanns fjárlaganefndar, þeir geta ekki flúið þá staðreynd að svona var þetta eins og lýst var. Ég ætla bara að taka dæmi af sjálfum mér, herra forseti.

Í því gekk Vigdís Hauksdóttir fram fyrir pontuna, kippti í pisfaldinn og sagði:

Má bjóða þér undir pilsfaldinn?

Össuri fipaðist aðeins við þetta en var snöggur til svars og sagði:

Ég er smekkmaður, ég er smekkmaður.

Hélt hann síðan áfram með ræðuna.

Skoðað: 10398

Umsagnir eru á ábyrgð þess sem þær skrifa

umsagnir